Aðalfundir deilda
Aðalfundir deilda AFLs Starfsgreinafélags verða haldnir sem hér segir í samræmi við lög félagsins.
Aðalfundir deilda AFLs Starfsgreinafélags verða haldnir sem hér segir í samræmi við lög félagsins.
Samningaviðræður AFLs við viðsemjendur eru að mestu í biðstöðu þessa dagana - en þó ganga viðræður félagsins við ALCOA Fjarðaál skv. áætlun og er ennþá stefnt að því að ljúka samningum við fyrirtækið í byrjun maí eins og samkomulag félagsins við ALCOA í desember sl. gerði ráð fyrir. Fundum um almenna kjarasamninga hefur verið frestað og sérkjarasamningaviðræður eru flestar í biðstöðu.
Trúnaðarmannanámskeið II 6. þrep, verður haldið á Eyjólfsstöðum 14. og 15. apríl n.k. ef næg þátttaka næst. Skráning fer fram í síma félagsins 4 700 300, eða á netfangið Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript.
Spennandi og skemmtileg dagskrá námskeiðsins er hér að neðan.
Fyrri dagur:
10:00-13:00 Vinnueftirlitið-vinnuvernd, Friðjón Axfjörð
13:00-14:00 Matur
14:00-17:00 Vinnueftirlitið-vinnuvernd, Friðjón Axfjörð
Seinni dagur:
10:00-13:00 Fyrirtækjasamningar og launaviðtöl, Guðmundur Hilmarsson
13:00-14:00 Matur
14:00-16:30 Fyrirtækjasamningar og launaviðtöl, Guðmundur Hilmarsson
16:30-17:00 Námsmat og slit
Ársfundur trúnaðarmanna AFLs Starfsgreinafélags 2011 var haldinn á Höfn í Hornafirði sl. föstudag og laugardag. Fundurinn tókst vel en hefur oftast verið betur sóttur en nú en alls voru um 40 trúnaðarmenn á fundinum.