Lokaðar skrifstofur og símatruflanir
Skrifstofur AFLs Starfsgreinafélags verða lokaðar föstudaginn 4. mars nk. Þá má búast við að símakerfi félagsins verði í uppnámi sama dag. Lokun skrifstofa er vegna þess að tölvukerfi félagsins, þ.m.t. þjónustugátt starfsfólks, verður uppfærð og skipt um símakerfi. Eftir mikla yfirlegu var ákveðið að framkvæma þessa kerfisbreytingu á skrifstofutíma m.a. vegna kostnaðar. Þeir félagsmenn sem eiga ósótta leigusamninga eða eftir að greiða leigu vegna orlofsíbúða eru hvattir til að gera það fyrir föstudag. Í neyðartilfellum er hægt að senda tölvupóst á Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript. eða hringja í farsíma starfsmanna sem gefnir eru upp á heimasíðu okkar www.asa.is