AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Niðurstaða umfangsmikillar viðhorfskönnunar birt í dag

thumb_konnun1,6% félaga AFLs hafa misst húsnæði sitt af völdum bankahrunsins 2008. Þetta kemur fram í umfangsmikilli viðhorfskönnun meðal félagsmanna AFLs sem framkvæmd var nú í haust. Unnið var með 1.500 manna úrtak og sá Capacent um framkvæmd og úrvinnslu könnunarinnar.

AFL var í samstarfi við Einingu Iðju á Akureyri og voru nákvæmlega sömu spurningar spurðar í könnunum beggja félaganna, AFL og Eining byggðu á könnun sem Flóafélögin, Efling, Verkalýðs-og sjómannafélag Keflavíkur og Hlíf í Hafnarfirði, hafa látið vinna fyrir sig undanfarin ár og var verið að framkvæmda á sama tíma og könnun AFLs og Einingar.

Czytaj dalej

16% fengu ekki kauphækkun - 30% hafa áhyggjur af fjármálum

Tæplega 16% félagsmanna AFLs fengu engar launahækkanir út úr síðustu kjarasamningum samkvæmt skoðanakönnum sem félagið lét gera.

Tvennt getur komið til, annars vegar að viðkomandi hafi verið búnir að semja um að fá hækkanirnar þær fyrirfram eða að félagsmennirnir hafi verið hlunnfarnir af þessum hækkunum.

Félagið hvetur þá sem það getur átt við um til að snúa sér til næstu skrifstofu félagsins, með launaseðlana fyrir 2011 og láta yfirfara þá.

Czytaj dalej

Samfélagslegt tap vegna svartrar vinnu smærri fyrirtækja 13,8 milljarðar á ári

thumb_leggurÍ tengslum við gerð kjarasamninga í vor skapaðist umræða um hvernig minnka mætti svarta atvinnustarsemi og bæta viðskiptahætti í landinu. Árangurinn var átaksverkefnið „Leggur þú þitt af mörkum?“ sem unnið var í samvinnu Ríkisskattstjóra (RSK), ASÍ og SA. Heimsótt voru yfir tvö þúsund lítil og meðalstór fyrirtæki í sumar og fengu 55% þeirra athugasemdir. Rætt var við sex þúsund starfsmenn og reyndust 12% þeirra vinna svart, flestir á Vestfjörðum. Tap þjóðarbúsins vegna svartrar atvinnustarfssemi nemur 13,8 milljörðum á ári.

Czytaj dalej

Önnur verðlaun

Vinningshafa í myndasamkeppni AFLs sem lentu í öðru sæti eru

Samningur við Keahotel

thumb_site-logoAFL Starfsgreinafélag gerði á dögunum samning við Keahotel um gistingu fyrir félagsmenn sína, um er að ræða gistingu á Hótel Kea Akureyri, Hótel Norðurlandi Akureyri, Hótel Björk í Reykjavík og Hótel Gígur í Mývatnssveit.  Panta þarf gistingu á viðkomandi hóteli í síma 460-2000 og taka þarf fram að greitt verði með hótel-gistimiða. Gistimiðana er svo hægt að kaupa á næstu skrifstofu AFLs, sjá nánar um verð:

Czytaj dalej

Búið að draga!

Könnun sem framkvæmd var af Capacent Gallup um ýmis atriði er varða kjör og aðstæður félagsmanna AFLs Starfsgreinafélags og Einingar-Iðju er nú lokið.
Könnunin var einnig happdrættismiði, allir sem þátt tóku gátu unnið veglegan vinning
Búið er að draga út vinningshafa, eftirfarandi númer voru dregin út.

Czytaj dalej

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi