Boðað er félagsfundar í verkamannadeild AFLs mánudaginn 9. september. kl. 17:00 að Búðareyri 1 Reyðarfirði, 1, hæð Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á ársfund Starfsgreinasambandsins
2. Önnur mál.
Ferðir á fundinn eru skipulagðar á skrifstofum félagsins.
AFL Starfsgreinafélag
Á starfslokanámskeiðinu er leitast við að svara algengum spurningum sem brenna á fólki við starfslok. Fjallað er um lífeyrisréttindi, búsetumál, réttindi vegna heilsugæslu og um frístundir og hvernig best sé að nota tímann eftir starfslok. Mikil áhersla er á virka þátttöku nemenda og að reyna að svara sem flestum spurningum og benda jafnframt á hvert hægt er að leita til að fá gagnlegar upplýsingar. Skráning á www.austurbru.is
AFL Starfsgreinafélag hefur undirritað nýjan stofnanasamning við Heilbrigðisstofnun Austurlands og færir nýr samningur félagsmönnum AFLs sem vinna hjá stofnuninni 3ja launaflokka hækkun.
Laust fyrir hádegi í dag sagði verktakinn við byggingu bryggjunnar á Djúpavogi, sig frá verkinu. AFL Starfsgreinafélag átti í gær fund með verkamönnum við bygginguna eins og fram hefur komið í fréttum. Mennirnir lögðu niður vinnu í dag og bíða eftir launagreiðslum og lá því vinna við smíðina að mestu niðri í dag.
Starfsmenn við byggingu nýrrar bryggju á Djúpavogi eru hlunnfarnir í launum og búa við ófullnægjandi skilyrði. Samkvæmt lauslegri könnun AFLs Starfsgreinafélags vantar á annað hundrað þúsun krónur á mánuði upp á að kjör starfsmanna við bygginguna standist kjarasamninga og lög. Á myndinni er kaffistofa starfsmanna.
Starfsgreinasambandið hefur tekið saman eftirfarandi punkta sem er gott að hafa í huga fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði, einnig til upprifjunar fyrir aðra. Ef þig vantar frekari upplýsingar eða ert að velta fyrir þér réttindum eða skyldum á vinnumarkaði svara starfsmenn félagsins þeim.