AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

AFL á aðalfundi ALCOA

Ásgeir Sigmarsson, trúnaðarmaður AFLs hjá Alcoa - Fjarðaáli, sækir í dag aðalfund ALCOA í Pittsburgh í Bandaríkjunum. Með Ásgeiri eru þeir Sverrir Albertsson, AFLi, og Björn Ágúst Sigurjónsson, Rafiðnaðarsambandi Íslands. Í gær funduðu fulltrúar verkalýðsfélaga víðs vegar um heiminn sem eiga félagsmenn sem vinna í ALCOA verksmiðjum.

Czytaj dalej

1. maí 2008

Verjum kjörinBaráttudagur verkafólks 1. maí var haldinn hátíðlegur í gær með hefðbundnum hætti, kaffiveitingar, ræður, tónlistar- og leikatriði voru meðal atriða á dagskrá. Vel á annað þúsund manns tók þátt í hátíðarhöldunum á starfssvæði AFLs.
AFL Stafgreinafélag vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem komu að framkvæmd hátíðarhaldanna.

Baráttukveðjur á 1. maí

Stjórn, starfsfólk og trúnaðarmenn AFLs Starfsgreinafélags senda félagsmönnum og launafólki öllu baráttukveðjur í tilefni 1. maí. "Verndum kjörin" er yfirskrift dagsins og ekki að ósekju en verðhækkanir rýra nú kjör þau sem nýgerðir kjarasamningar áttu að tryggja.

AFL efnir til hátíðahalda í tilefni dagsins á 10 þéttbýlisstöðum - sjá lesa meira hér að neðan.

Czytaj dalej

Síðustu dagar umsókna um orlofshús

Orlofskostir, skoða nánarNú streyma inn umsóknir um orlofshús, umsóknarfrestur er til 29. apríl, úthlutun fer fram í kjölfarið. Þeir sem hafa hug á að sækja um geta gert það á viðeigandi umsóknareyðublaði eða í síma 4700300. Rétt er að taka það fram að lokið hefur verið við úthlutun íbúðarinnar á Spáni.

Ársfundur Stapa 8. maí

Stapi LífeyrissjóðurÁrsfundur lífeyrissjóðsins Stapa verður haldinn 8. maí nk. í Hótel Reynihlíð við Mývatn, fundurinn hefst klukkan 14:00 og er opinn öllum sjóðsfélögum með málfrelsi og tillögurétt. Atkvæðisrétt hafa þeir einir sem kosnir hafa verið á fundinn sem fulltrúar þeirra aðildarfélaga sem að sjóðnum standa.

Góður árangur í innheimtumálum

Í gær féll dómur í Héraðsdómi Austurlands í máli er lögmenn AFLs Starfsgreinafélags höfðuðu fyrir hönd erlends félagsmanns. Með dómnum voru allar kröfur félagsins viðurkenndar og viðkomandi fyrirtæki dæmt til að greiða um 600.000 krónur auk álíka upphæðar í málskostnað.

Czytaj dalej

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi