Getur Starfsendurhæfing Austurlands hjálpað þér?
Starfsendurhæfing Austurlands (StarfA) býður upp á náms- og atvinnutengda endurhæfingu þar sem unnið er að andlegri og líkamlegri endurhæfingu. Bæði er um einstaklingsmiðaða ráðgjöf að ræða og hópvinnu. Meðal starfsmanna StarfA er einnig ráðgjafi stéttarfélaganna sem annast ráðgjöf og milligöngu um atvinnutengda endurhæfingu sem studd er af VIRK - endurhæfingarsjóði atvinnulífsins.
StarfA er fyrir:
• Fólk sem hefur verið frá vinnu í lengri eða skemmri tíma vegna veikinda, slysa eða félagslegra ástæðna.
• Fólk sem fær veikindalaun, sjúkradagpeninga, endurhæfingarlífeyrir, atvinnuleysisbætur, örorkubætur eða er á framfærslu sveitarfélaga.
• Fólk sem vill auka virkni og atvinnuþátttöku, auka lífsgæði sín, auka menntun eða draga úr örorku.
Frekari upplýsingar um StarfA og umsóknarferlið veita starfsmenn. Einnig má senda tölvupóst á Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript..