Siðferði og enduruppbygging
Árleg kjaramálaráðstefna AFLs Starfsgreinafélags verður haldin 19. sept. nk. í húsnæði félagsins á Reyðarfirði. Dagskrá ráðstefnunnar að þessu sinni er helguð "Siðferði og enduruppbyggingu". Kjaramálaráðstefnan er ætluð félagsmönnum AFLs og gestum en hámarksfjöldi þátttakenda er 75 manns.
Sjá drög að dagskrá og nánari umfjöllun.
Drög að dagskrá Kjaramálaráðstefnu AFLs 2009
10:00 Setning – Jóna Járnbrá Jónsdóttir, formaður Verkamannadeildar AFLs
10:10 Ávarp formanns AFLs– Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
10:30 Siðferði – tenging í viðskiptum – traust – árangur
Stefán Einar Stefánsson, siðfræðingur, Háskólanum í Reykjavík.
Fjallað verði um siðferðisgildi í almennum samskiptum einstaklinga vs. þau viðskipti sem valdið hafa hruni efnahagslífs.
Rætt um hlut siðferðisvitundar í viðskiptum og hvernig traust byggir á sameiginlegum gildum. Fjallað um nauðsyn „siðvæðingar“ og hvernig okkur verði unnt að skapa traust á fjármálastofnunum – innanlands sem utan. Þáttur almennings og fjölmiðla, stjórnamálamanna og félagslegra afla.
11:30 Kaffihlé
11:45 Spilaborgin hrynur – Anna Ólafsdóttir, félagsmaður AFLs.
Fjallar um tilfinningu og upplifun tengda bankahruni og setningu neyðarlaga. Fer yfir persónulega sýn á trausti og siðferði í viðskiptum– trú á framtíð.
12:30 Hádegisverður
13:30 Umræðuhópar
15:00 Enduruppbygging – atvinnuþróun. Adolf Guðmundsson, formaður LÍU
Sjávarútvegur sem kjölfestugrein, átakamál og uppgjör - nýsköpun og aukning verðmæta. Framtíðarsýn.
15:45 Kaffihlé
16:00 Atvinnuuppbygging – framtíðarsýn. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Höfn.
Nýsköpun og sprotar. Endurheimta og traust. Sveitarfélög á umbrotatímum; aukin ábyrgð í velferðarmálum.
16:45 Umræðuhópar
17:30 Pallborð – í pallborði, Stefán, Adolf, Hjalti, Anna, Hjördís Þóra o.fl.
18:30 Ráðstefnuslit.
18:30 Aukaaðalfundur AFLs
a. Afgreiðsla ársreiknings
b. Kjör fulltrúa á þing SGS
c. Kjör fulltrúa á ársfund ASÍ
19:00 Kvöldverður
Eins og á fyrri kjaramálaráðstefnum AFLs er þátttakendum skipt í umræðuhópa sem fjalla um málefni ráðstefnunnar undir stjórn hópstjóra og ritara. Frummælendur hitta alla hópa að máli. Í pallborði gera hópstjórar grein fyrir umræðum hópsins og fulltrúar í pallborði taka þátt í umræðum með ráðstefnugestum.
Ritarar AFLs taka saman helstu niðurstöður úr umræðum og verða þær niðurstöður notaðar við stefnumótun félagsins á vetri komanda.
Skráning á ráðstefnuna er hafin og er félagsmönnum bent á að skrá sig á næstu skrifstofu félagsins eða með pósti á Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript.. Skipulag ferða verður á höndum hverrar skrifstofu félagsins fyrir sig. Félagsmenn AFLs greiða ekki þátttökugjald.
Athygli er vakin á því að í lok ráðstefnunnar verður settur aukaaðalfundur AFLs sem boðaður verður með dagskrá. Ástæða þessa aðalfundar er að á aðalfundi félagsins í vor urðu þau mistök að í fundargögnum var rangur ársreikningur þó svo að hinn rétti reikningur hafi einnig verið á fundarstað og í nokkru upplagi til dreifingar.
Munur þessara tveggja útgáfa af ársreikningi félagsins lítur að aðild sjóða félagsins innbyrðis að vaxtatekjum / fjármagnstapi en hefur engin áhrif á heildarútkomu félagsins. Það er mat lögmanna félagsins að til að taka af allan vafa um að ársreikningur félagsins sé rétt samþykktur þurfi að setja aukaaðalfund og bera réttu útgáfu reikningana undir atkvæði.´
Tækifærið verður síðan notað til að kjósa fulltrúa AFLs á þing SGS og ársfund ASÍ.