AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Vinnumiðlanir - ekki greiða fyrir skráningu!

EuropEinn félagsmanna AFLs hafði samband við skrifstofu félagsins og sýndi auglýsingu frá fyrirtæki sem kallar sig "Smart Jobs" og birtist í visir.is. Þar segir að fyrirtækið hafi nýlega opnað vinnumiðlun í Reykjavík, New York og London - til þess að útvega Íslendingum atvinnu -  aðallega í Englandi. Fyrirtækið rukkar skráningargjald fyrir þjónustuna.

Continue Reading

Nýtt námsver á Reyðarfirði

img_4780Þekkingarnet Austurlands og AFL Starfsgreinafélag opnuðu í gær nýtt námsver í húsnæði AFLs að Búðareyri 1 á Reyðarfirði. ÞNA mun starfrækja námsverið en AFL Starfgreinafélag hefur innréttað húsið þannig að það henti sem fundaraðstaða og til kennslu.

Continue Reading

Opinn fundur um efnahagshrunið!

Hvað gerðist og hvað gerum við svo? Þjóðkirkjan, AFL Starfsgreinafélag og Þekkingarnet Austurlands bjóða íbúum Austurlands að sækja opinn umræðufund um efnahagsástandið, ástæður fallsins og leiðir út úr vandanum. Á fundunum munu þeir Vilhjálmur Bjarnason og Stefán Einar Stefánsson flytja erindi. Fundirnir verða haldnir á: - Egilsstöðum  í húsnæði ÞNA að Tjarnarbraut 39 e, föstudaginn 27. febrúar kl. 20. - Reyðarfirði í húsi AFLs- Molanum, Búðareyri 1, laugardaginn 28. febrúar kl. 15. Einnig í fjarfundum víða um Austurland, þeir sem vilja nýta þá tækni hafi samband við ÞNA í netfang This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Fundirnir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis.

SGS fjallar um áhrif á velferðarkerfi

Á vorfundi SGS semáformað er að halda í Vestmannaeyjum í maímánuði verður fjallað um áhrif af stöðu efnahagsmála á velferðarkerfið. Ljóst er að verulegur halli er á ríkisfjármálum á þessu ári og kannski lítil ástæða til að ætla að um verulegan tekjuauka verði á næstunni. Alþjóða gjalddeyrissjóðnum hefur verið lofað að fjárlög verði hallalaus innan fárra ára.

Continue Reading

Svíar semja um skert starfshlutfall

Um 25.000 félagar í IF Metall í Svíþjóð, en það eru að mestu leyti starfsfólk í iðnaði, er atvinnulaust og um 40.000 hefur verið tilkynnt um mögulegar uppsagnir. Vegna þessa ástands hafa launagreiðendur og IF Metall gengið frá rammasamkomulagi um hlutastörf og tímabundnar uppsagnir.

Continue Reading

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi