Greidd atkvæði um verkfall
Atkvæðagreiðsla bræðslumanna í AFLi og Drífanda um verkafallsboðun í fiskimjölsversmiðjum er hafin. Trúnaðarmenn félaganna dreifa atkvæðaseðlum í dag en frestur til að greiða atkvæði er til 25. janúar. Fulltrúar félaganna verða á Þórshöfn í dag og hitta formann Verkalýðsfélags Þórshafnar en félagið þar hefur ekki boðað til aðgerða í fiskimjölsverksmiðjunni. Fiskimjölsverksmiðjan á Þórshöfn er í eigu Ísfélags Vestmannaeyja.