Nýr orlofsvefur
Unnið er að uppsetningu að nýjum orlofsvef AFLs Starfsgreinafélag. AN Lausnir á Egilsstöðum vinna verkefnið. Í dag hefur verið unnið að prófunum á kerfinu og nú er verið að lagfæra villur sem í ljós komu við prófanir.
Stefnt er að því að vefurinn fari í loftið strax á mánudag og geta félagsmenn þá skoðað framboð á orlofskostum, bókað íbúðir og greitt fyrir á netinu auk þess sem félagsskírteini félagsmanna virkjast þá sem lykill að viðeigandi orlofseign.
Orlofsvefurinn byggir m.a. á því að félagakerfi AFLs þekki farsímanúmer og netföng félagsmanna og er því félagsmönnum sem ekki hafa fengið fjölpóst frá AFLi á síðustu mánuðum bent á að senda tölvupóst með upplýsingum um farsímanúmer og netfang auk kennitölu félagsmanns á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
STARF
Þann 10. febrúar 2012 var undirritað samkomulag milli velferðarráðuneytisins, Vinnumálastofnunar (VMST), Samtaka atvinnulífsins (SA) og Alþýðusambands Íslands (ASÍ) um að efna til þriggja ára tilraunaverkefnis sem hefur það markmið að efla vinnumiðlun og stuðla að virkari vinnumarkaðsaðgerðum, sem jafnframt auki líkur atvinnuleitenda á því að fá störf á vinnumarkaði að nýju.
Trúnaðarmannanámskeið
Vinnuverndarvikan 2012-2013
Árlega er haldin Evrópsk vinnuverndarvika undir forystu Evrópsku vinnuverndar-stofnunarinnar og nú er vikan dagana 22.-26. október .Starfshópur skipaður fulltrúum atvinnulífsins og Vinnueftirlitsins sér um framkvæmd verkefnisins hér á landi.
Yfirskrift Evrópsku vinnuverndarvikunnar árin 2012 og 2013 er Vinnuvernd – allir vinna og er megináherslan lögð á sameiginlega ábyrgð stjórnenda og starfsmanna á vinnuvernd. Beinist herferðin aðallega að tveimur þáttum:
Félagsskírteinin eru lyklar
AFL Starfsgreinafélag er að undirbúa að setja nýjan orlofsvef félagsins í gang - þar sem bókun, greiðsla og afhending lykla verður sjálfvirkt ferli sem félagsmenn stjórna sjálfir úr einkatölvum sínum. Sem fyrsti liður í innleiðingu þessa kerfis hafa lyklabox nú verið fjarlægð úr orlofsíbúðum félagsins í Reykjavík og eru félagsskírteini nú virkjuð sem lyklar að íbúðunum.
Heilsa og lífsstíll
Fleiri greinar...
- Jól og Áramót umsóknarfrestur
- Ljósmyndasamkeppni sumar 2012
- Kjarasamningur fyrir smábáta samþykktur
- Símar félagsins orðnir virkir
- Lokaður sími
- Félagsmenn athugið
- Atkvæðagreiðsla um kjarasamning.
- Húsnæði – mannréttindi ekki forréttindi
- Starfsdagur grunnskólastarfsmanna
- Sumarbústaðir Einarsstaðir, Klifabotn og Illugastaðir
- Kjarasamningur Sjómannasambandsins og Landssambands smábátaeiganda.
- Atvinnulífssýningin "Okkar samfélag"
- Bókagjöf!
- Vinnur þú á gistihúsi eða veitingastað í sumar?
- Orlofsuppbót greidd?
- Nýtt tæki til að uppræta launamun kynjanna.
- Heimsókn frá Færeyjum
- Vinnustaðaeftirlit skilar árangri
- Í þjónustu við atvinnuleitendur á Austurlandi
- Höfnum pólitískum afskiptum af rammaáætlun
- Launafólkið fær alltaf reikninginn!
- 1. maí 2012 - Vinna er velferð
- Vinnum ekki á 1. maí
- Aðalfundi AFLs lokið
- Laus tímabil í sumarhúsum félagsins sumar 2012