Ráðvillt og dofin þjóð!
Stjórn AFLs sat á fundi þegar Geir Haarde, forsætisráðherra ávarpaði þjóðina í dag. Stjórnarmenn setti hljóða. Ekki síst í ljósi þess að ekki hafði verið óskað samráðs við verkalýðshreyfinguna í aðdraganda þessarar ákvörðunar. En þrátt fyrir sambandsleysi milli ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins um helgina réttir ASÍ út höndina:
Í ljósi þeirra alvarlegu atburða sem nú eiga sér stað í íslensku fjármálalífi tekur Alþýðusamband Íslands undir þær áherslur ríkisstjórnarinnar að hagur almennings og fyrirtækja verði tryggður eins vel og kostur er. Alþýðusambandið lýsir sig reiðubúið til samstarfs við ríkisvaldið til að varðveita almannahagsmuni á þessum erfiðu tímum. Nú ríður á að allir leggist á eitt til að fjármálalegum stöðugleika verði náð sem fyrst. Sjá vef ASÍ
"Munum sýna auðmýkt" - AFL skoðar veraldarvefinn
Svissneski bankinn UBS tilkynnti um 2000 uppsagnir í gær og hefur þá alls sagt upp 6000 starfsmönnum á einu ári. Bankinn hefur tapað 42 milljörðum dollara í þessari lánakrísu. Stjórnarformaðurinn hét því á blaðamannafundi í gær að yfirstjórn bankans myndi leggja hart að sér og auðsýna auðmýkt. (af vef BBC í dag) Beðið er sambærilegra yfirlýsinga Íslenskra bankamanna.
Flutningur fjármagns lífeyrissjóðanna, stórfellt erlent lán, aukning veiðiheimilda, umsókn í EB, endurskoðun kjarasamninga. Þetta er meðal þeirra leiða sem að sögn eru kannaðar í dag en samkvæmt svartsýnistu þjóðfélagsrýnum blasir lítið annað við en efnahagslegt hrun á morgun, mánudag, verði ekkert að gert í dag.
Kortlagningu heimilda að ljúka!
Gísli Sverrir Árnason, stjórnsýslufræðingur, hefur í sumar unnið að kortlagningu heimilda um sögu verkalýðshreyfingarinnar á Austurlandi á vegum AFLs. Vinnu hans er að ljúka og kynnir hann lokaskýrslu sína á fundi á Gistiheimilinu á Egilsstöðum nk. föstudag kl. 14:00.
Haustið 2007 boðaði AFL til málþings um sögu hreyfingarinnar á Austurlandi og í framhaldi þess málþings fól stjórn AFLs Gísla Sverri að skrásetja þær heimildir sem hann hefði upp á,
Slegið á útrétta hönd
Atvinnuöryggi: Alþjóðlegur baráttudagur
Fleiri greinar...
- Leigjendur fórnarlömb gjaldþrota
- AFL: Símenntunarverðlaun 2008
- Miðstjórn ASÍ á Kárahnjúka
- Vinnusöm kjaramálaráðstefna að baki
- AFL Starfsgreinafélag ályktar um kjaramál
- Þokkaleg mæting á kjaramálaráðstefnu
- Athugasemd við frétt!
- Fyrsti ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands
- Samflot í sveitarfélagasamningunum?
- Starfsdagur grunnskólafólks - tvær skrifstofur lokaðar