Auglýst eftir stjórnarmönnum í Birtu Lífeyrissjóð
Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir frambjóðendum til þess að taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2025 til 2027.
Fulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn (karl og konu) til tveggja ára og einn varamann (karl) til tveggja ára í stjórn sjóðsins.
Samkvæmt samþykktum Birtu lífeyrissjóðs (gr. 5.10) hefur valnefnd m.a. þann yfirlýsta tilgang að tryggja að stjórn sjóðsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu og þekkingu stjórnarmanna sem og að tryggja gagnsæi í málum um tilnefningu stjórnarmanna.
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn umsókn í formi útfyllts framboðseyðublaðs og senda það á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir kl. 16.00 laugardaginn 22. febrúar 2025.
Fyrirspurnir skulu einnig berast á netfangið: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.