Starfsmannaferð - skert þjónusta
Hluti starfsmanna AFLs fer í starfsmannaferð fimmtudag og föstudag. Því verður skert þjónusta hjá félaginu. Skrifstofan á Höfn verður opin svo og skrifstofan á Reyðarfirði og svarað verður í síma 4700 300 þessa daga. Þeir starfsmenn sem ekki fara ferðina - munu reyna að annast erindum og mögulega verður skrifstofan á Egilstöðum opin annan þessara daga.
Sjómannasamningar: Árangurslaus fundur
Samninganefndir Sjómannasambandsins og SSÍ funduðu í dag. Fundurinn var árangurslaus og miðaði lítt í samkomulagsátt. Viðræðum var ekki slitið - en ekki hefur verið boðaður annar fundur í deildunni. Nýafstaðið þing Sjómannasambandsins lýsti trausti á samninganefnd sambandsins og hvatti til að viðræðum væri haldið áfram. Á þinginu var m.a. rætt hvað hefði aðallega valdið því að samningar í febrúar hefðu verið felldir og nokkur atriði nefnd. Samninganefnd SSÍ hefur unnið að því að fá úrbætur í þeim efnum. Meðal þess sem félagsmenn hafa nefnt er lengd samningsins og er unnið að því að stytta samningstíma. Einnig voru ákvæði um veikindarétt óskýr og hefur verið unnið að því að skýra þau og þá er margumtalað ákvæði 1.39 sem verið hefur í kjarasamningi sjómanna síðustu 20 ár - en menn vilja út nú. Þá er deilt um gamalt ákvæði með að áhöfn ísfiskiskipa annist "yfirísun" afla sem senda á á markað erlendis - en dýrmætur tími fer a löndunarfríi manna í þessa vinnu og nánast enginn afli fer lengur á markað - heldur hefur verið seldur áður beinni sölu. Því vill SSÍ meina að ákvæðið eigi ekki við lengur. Aðeins fáar útgerðir láta áhafnir skipa ennþá standa í þessu - en það strandar á þeim að gefa þetta ákvæði eftir og leyfa mönnum að njóta hafnarfría.
Kjarasamningarnir í febrúar voru felldir með 67% atkvæða en kjörsókn var rétt innan við 50%.
Á næstu dögum og vikum munu forystumenn sjómannafélaga ráðgast við bakland sitt og væntanlega verða síðan teknar ákvarðanir um aðgerðir öðru hvoru megin við áramót - ef ekki þokast í samningaátt fyrr.
Sveitarfélög: Aðgerðir auka stéttskiptingu
Ályktun frá Miðstjórn Alþýðusambandsins um nýlega þróun í leikskólamálum sveitafélaga
Miðstjórn ASÍ lýsir yfir áhyggjum sínum af nýlegri þróun í dagvistunarmálum sveitarfélaganna, nú síðast á Akureyri, og varar við ófyrirséðum afleiðingum hennar.
Undanfarna mánuði hefur borið á tillögum sem ætlað er að leysa mannekluvanda á leikskólum og auka velferð barna með meiri samveru með foreldrum. Tillögurnar spretta ekki upp úr tómarúmi heldur hefur vanfjármögnun og skammsýni einkennt málaflokkinn um árabil sem bitnað hefur á kjörum og aðbúnaði starfsfólks leikskólanna. Miðstjórn ASÍ leggur áherslu á að það er á ábyrgð sveitafélaganna og stjórnvalda að tryggja fjármögnun leikskólakerfisins og viðunandi aðbúnað starfsfólks.
Bæði Kópavogsbær og Akureyrarbær hafa samþykkt nýjar gjaldskrár sem fela í sér gjaldfrjálsa sex klukkustunda leikskólavist barns. Á móti hækkar gjald þeirra foreldra sem þurfa á lengri vist barna að halda. Samhliða gjaldskrárbreytingum hefur þjónusta verið skert með fjölgun svokallaðra skráningadaga.
Breytingarnar endurspegla með engu móti stöðu foreldra á vinnumarkaði, en yfir 90% barna eru á leikskóla meira en sex klukkustundir á dag. Meðan hátekjufólk með sveigjanlegan vinnutíma og sterkt bakland getur nýtt sér gjaldfrjálsan leikskóla kemur breytingin niður á láglaunafólki, innflytjendum og einstæðum foreldrum í formi hærri gjalda og skertrar þjónustu.
Breytingar munu hafa neikvæð áhrif á stöðu kvenna á vinnumarkaði. Þriðjungur kvenna er nú þegar í hlutastörfum og rannsóknir sína að umönnunarábyrgð er helsta ástæða þess að konur eru í skertu starfshlutfalli. Með aðgerðunum varpa sveitarfélögin mannekluvanda leikskólanna yfir á foreldra og þá einkum mæður í stað þess að taka á mannekluvandanum innan sinna raða. Þannig vinnur breytingin gegn jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
Miðstjórn ASÍ bendir á mótsögnina í hugtakinu „gjaldfrjáls leikskóli“ sem aðeins gagnast litlum hluta foreldra sem sterkt standa fjárhagslega, á kostnað láglaunafólks og því hætta á að aðgerðirnar auki stéttskiptingu. Miðstjórn varar jafnframt við því að með breytingunum er áfram grafið undan velferðarstoðum samfélagsins og forsendum mikillar atvinnuþátttöku á Íslandi.
Ingibjörg Sigurðardóttir - starfsmaður okkar í 27 ár - er látin
Á morgun, þriðjudaginn 28. nóvember, verður útför Ingibjargar Sigurðardóttur, aðalbókara AFLs Starfsgreinafélags og áður Verkalýðsfélags Norðfjarðar. Ingibjörg lést eftir stutt og snörp veikindi um miðjan mánuðinn. Hún var við störf nánast fram á síðasta dag - og á meðan hún sótti læknisþjónustu á Sjúkrahúsið á Norðfirði, kom hún á skrifstofuna seinnipartinn og kláraði sín verkefni.
Ingibjörg hóf störf hjá Verkalýðsfélagi Norðfjarðar 1996 en hafði áður verið bókari Kaupfélagsins Fram á Neskaupstað fram að gjaldþroti þess félags. Ingibjörg var einstaklega traustur starfsmaður og samviskusöm í sínum verkefnum. Hún var Norðfirðingur með stórum staf - og átti sjaldan að eigin sögn - erindi út fyrir fjallahringinn.
Ingibjörg lætur eftir sig dóttir og barnabarn.
Skrifstofur AFLs á Neskaupstað, Reyðarfirði og Egilsstöðum verða lokaðar frá kl. 11 í fyrrmálið vegna útfararinnar.
33. þing Sjómannasambandsins lýsir yfir stuðningi við samninganefnd
Á nýyfirstöðnu þingi Sjómannasambandsins var lýst yfir stuðningu við samninganefnd sambandsins og hvatti til áframhaldandi viðræðna með það að markmiði að klára samningagerð sem fyrst.
Boðað hefur verið til samningafundar á morgun, þriðjudag 21.11.2023.
Á þinginu fór fram hreinskiptin umræða um kjarasamninginn sem felldur var í febrúar síðastliðinn og hvaða atriði í honum réðu því að hann var felldur. Það sem helst var rætt voru atriði sem komið hafa fram áður - s.s. lengd samningsins, lækkun skiptaprósentu v. aukinnar lífeyrisréttinda og svokölluð grein 1.39
Þing Sjómannasambandsins fór vel fram og voru ályktanir þess samþykktar samhljóða án mótatkvæða.
Fleiri greinar...
- AFL lánar Rauða Krossinum hús v. rýmingar í Grindavík
- Fréttabréf AFLs
- SGS þing
- Skrifstofur AFLs lokaðar eða hálfmannaðar
- Sveitarfélög á Austurlandi skerða ekki laun v. þátttöku í kvennaverkfalli
- Viðhorfskönnun AFLs 2023 er komin af stað
- Um helmingur launakrafna er vegna erlendra félagsmanna
- Samningur við sveitarfélögin samþykktur
- Starfsdagur starfsmanna grunnskólanna
- Kjarasamningur við samband íslenskra sveitarfélaga - kynning / Kosning