Hiksti í samningaviðræðum - bræðslusamningar í uppnámi
Þá slitnaði upp úr viðræðum Samtaka atvinnulífsins við AFL Starfsgreinafélag og Drífanda Stéttarfélag um kjör starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum. Viðræður hafa staðið síðan í byrjun desember og var samkomulag í augsýn um flest atriði en kröfu Samtaka atvinnulífsins um að kjarasamningur bræðslumanna yrði alfarið færður undir aðalkjarasamning - var hafnað af stéttarfélögunum. Í dag var síðan árangurslaus fundur um málið og að honum loknum var viðræðum slitið.
Í ljósi jákvæðra tóna í viðræðum SA og SGS fyrir og um helgi frestaði aðgerðarhópur SGS frekari fundarhöldum í síðustu viku. Hópurinn mun koma saman og leggja tillögur sínar fyrir fund aðalsamninganefndar Starfsgreinasambandsins nk. fimmtudag.